Fréttir

Brísingamen - þráðurinn frá Miklugyðju til mín

Nú er skráning hafin í námið Brísingamen og sérstakt snemmskráningartilboð til þeirra sem skrá sig og greiða staðfestingargjald fyrir 15. júlí.

Yggdrasill - forn fræði á firrtum tímum

Námskeið á shamanískum nótum, haldið á Öxl, Snæfellsnesi dagana 26. - 28. ágúst 2022 Leiðsögufreyja: Valgerður H. Bjarnadóttir

Endurfæðing Vanadísarvefsíðunnar

Af ýmsum ástæðum hefur þessi vefsíða legið í einhvers konar dái í næstum tvö ár, svo það er sannarlega tími til kominn að hún vakni til lífsins og haldi áfram að færa ykkur fréttir af starfsemi Vanadísar. Eins og hjá goðum fornsagnanna verður þessi Undirheimaferð bara til þess að gefa henni aukinn styrk og ég hlakka til að vera með ykkur hér á næstu misserum, láta ykkur vita af því sem framundan er og færa ykkur fréttir af því sem er í gangi.

VEFUM LÍFSVEFINN ÁFRAM

Námskeið fyrir konur sem vilja nýta Lífsvefinn í störfum sínum 13. október 2022 til 7. maí 2023 Leiðbeinandi: Valgerður H. Bjarnadóttir, félagsráðgjafi