Námskeið Vanadísar 2018

Valgerður H. Bjarnadóttir
Valgerður H. Bjarnadóttir
Vanadís mun bjóða upp á ýmiss konar námskeið í sumar og næsta vetur, allt frá örnámskeiðum til heils vetrar náms.
Að venju verður áherslan á fjóra þætti:
1. Sjálfsþekkingu - sem er í raun kjarni allra námskeiðanna
2. Drauma - þ.á.m. Draumsögunám og -námskeið í samvinnu við Elísabetu Lorange
3. Gyðjuna og menningarsögu kvenna - Gyðjusögur og lengra nám um Gyðjuna í veröldinni og hið innra
4. Shamanisma - með áherslu á okkar eigin rætur og þá þekkingu og visku sem býr í fornum sögnum okkar.
 
Námskeiðin eru haldin víða um land og lönd, þótt höfuðstöðvar Vanadísar séu á Norðurlandi.
Nánari upplýsingar er að finna á Facebook og hér á síðunni.