Brísingamen - þráðurinn frá Miklugyðju til mín

 

Vetrarnám í gyðjufræðum fyrir konur

 

Valgerður H. Bjarnadóttir,
félagsráðgjafi og MA í femínískri menningarsögu og trúarheimspeki

 

Tími - Október 2018 til maí 2019 – 9 skipti ca. 120 klst
Staður - Námið er í boði fyrir konur á höfuðborgarsvæðinu og á Norðausturlandi

 

Hver er þáttur kvenna og hins kvenlæga í mótun menningar og þar með sjálfsmyndar okkar? Hvernig getum við haft áhrif á eigin sjálfsmynd og mótun menningar til framtíðar?

 

Þegar fjallað er um hugmynda- og menningarsögu mannkyns fer enn lítið fyrir kvenlægum hugmyndum og sögu kvenna.  Þessi skekkja hefur bein áhrif á sjálfsmynd og heimsmynd bæði kvenna og karla. Sjálfsmynd allra kynja og mynd okkar af hvert öðru verður skökk. 

Í þessu námi munum við rekja þráðinn í gegnum þúsunda ára menningarsögu, rýna í þátt hins kvenlæga í veröldinni og trúnni, læra um sjálfar okkur og þær meðvituðu og ómeðvituðu hugmyndir sem móta okkur. Við lærum um gyðjumenningu fyrri tíma, mæðrasamfélög fyrr og nú, og  ótal myndbirtingar Gyðjunnar í gegnum árþúsundin, allt til okkar daga, og ekki síst um upprisu hennar á síðustu árum. 

Við munum að sjálfsögðu einnig fjalla um konur sem hafa átt ríkan þátt í að móta hugmyndir og menningu í gegnum tíðina. Við munum skoða gyðjur allra heimshluta en höfuðáherslan verður á þá menningu sem þróaðist frá Evrópu, Mesópótamíu og Egyptalandi og sem rætur okkar flestra teygja sig til. 

 Námið er flétta akademískrar, skapandi og persónulegrar nálgunar og byggir á  

  • Sögum, fræðigreinum, heimildamyndum og öðru námsefni sem þátttakendur tileinka sér
  • Skapandi vinnu, samtali og tengslum við náttúruna
  • Sjálfsskoðun, seið og draumum

 Heitið Brísíngamen vísar til gullna mensins sem Freyja öðlaðist þegar hún tengdist vættum allra átta og varð heil. Óðinn og Loki stálu frá henni meninu og þar með var jafnvæginu raskað. Menið er því hér tákn fyrir gyðjumenninguna, sem er haldið í gíslingu feðraveldisins, innra með okkur og hið ytra.

 Leiðsögukona er Valgerður H. Bjarnadóttir. Valgerður er félagsráðgjafi, með BA í heildrænum fræðum með áherslu á draumavinnu og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu með áherslu á gyðjutrú. Hún hefur árum saman fjallað um sjálfsþekkingu, gyðjumenningu, drauma, ævintýri og shamanisma, í ræðu og riti, og á námskeiðum, auk ýmissa annarra starfa.

 

Í lok september eru tveir hópar fullskipaðir sunnan heiða, en enn eru nokkur laus pláss norðan heiða. 

 Skráning á sérstökum eyðublöðum, ekki síðar en 15. október n.k. 

Skráning, umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um verð, tilhögun, dagsetningar o.fl. í síma 895 3319 og á vanadis@vanadis.is