Brísingamen - þráðurinn frá Miklugyðju til mín

Í þessu námi munum við rekja þráðinn í gegnum þúsunda ára menningarsöguna og rýna í þátt hins kvenlæga í veröldinni og trúnni. Við munum læra um sjálfar okkur og þær meðvituðu og ómeðvituðu hugmyndir sem móta okkur. Við lærum um gyðjumenningu fyrri tíma, mæðrasamfélög fyrr og nú, og ótal myndbirtingar Gyðjunnar í gegnum árþúsundin, allt til okkar daga og ekki síst um upprisu hennar á síðustu árum.

Við munum að sjálfsögðu einnig fjalla um samhengið milli stöðu kvenna og gyðjunnar í trúnni.

Heitið Brísíngamen vísar til gullna mensins sem Freyja öðlaðist þegar hún tengdist vættum allra átta og varð heil. Óðinn og Loki stálu frá henni meninu og þar með var jafnvæginu raskað. Menið er því hér tákn fyrir gyðjumenninguna, sem er haldið í gíslingu feðraveldisins.

Námið er flétta akademískrar, skapandi og persónulegrar nálgunar og byggir á
• Sögum, fræðigreinum, heimildamyndum og öðru námsefni sem þátttakendur tileinka sér
• Skapandi vinnu, samtali og tengslum við náttúruna
• Sjálfsskoðun, seið og draumum

Leiðbeinandi er Valgerður H. Bjarnadóttir. Valgerður er félagsráðgjafi, með BA í heildrænum fræðum með áherslu á draumavinnu og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu með áherslu á gyðjutrú. Hún hefur árum saman fjallað um sjálfsþekkingu, gyðjumenningu, drauma, ævintýri og shamanisma, í ræðu og riti, og á námskeiðum, auk ýmissa annarra starfa.

Skráning á sérstökum eyðublöðum, ekki síðar en 27. júlí n.k.

Skráning, umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um verð, tilhögun, dagsetningar o.fl. í síma 895 3319 og á vanadis@vanadis.is