Valgerður

Valgerður H. Bjarnadóttir  - konan á bak við verkefnið Vanadís - rætur okkar, draumar og auður

  valgerdurotsmallLjósmynd: Ólafur Thoroddsen

Sérsvið

Sjálfsstyrking, samskipti og sjálfsþekking; goðsagnir, menningarsaga og femínísk trúarheimspeki; kvenfrelsi og jafnrétti; draumar og draumavinna; sjamanismi

Menntun

Félagsráðgjafi frá Noregi 1980, BA í heildrænum fræðum með áherslu á draumafræði frá CIIS í San Fransiskó 1996, MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu með áherslu á norræna goðafræði og gyðjutrú frá CIIS 2001.

Styttra nám og námskeið í sálarfræði, leikhúsfræðum, sjamanisma, draumafræðum, tungumálum (enska, norræn tungumál, franska), kennslufræðum, fjölskylduráðgjöf, Jungisma o.fl.

Starfsreynsla

Ráðgjöf einstaklinga og hópa, verkefnisstjórn og stjórnun opinberra stofnana og deilda, rekstur eigin fyrirtækis, kennsla unglinga og fullorðinna, stjórnmál, leiklist, alþjóðasamskipti, félagsstarf, starf með útlendingum á Íslandi, móður- og ömmuhlutverk

Stutt æviágrip

Ég fæddist í þennan heim 24. janúar 1954 á heimili ömmu minnar og afa við Hríseyjargötu á Akureyri. Ólst upp á Akureyri og hef búið þar góðan hluta ævi minnar, með nokkrum hléum þó. Sem barn bjó ég um tíma í Englandi. Eftir stúdentspróf stundaði ég nám í sálarfræði við HÍ í eitt ár og brá mér svo til Frakklands þar sem ég gluggaði í frönsku og leikhúsfræði meðfram ýmsum störfum. Þaðan hélt ég til Noregs. Ég útskrifaðist 1980 sem félagsráðgjafi frá Sosialhögskolen Bærum.

1996 lauk ég BA gráðu í heildrænum fræðum (Integral Studies) frá California Institute of Integral Studies í San Francisco, með áherslu á draumafræði. Síðan stundaði ég MA-nám í femínískri trúarheimspeki (Women’s Spirituality) við sama skóla. Þar lagði ég áherslu á að finna tengsl úr íslenska sagnaarfinum við kvenímyndir og trúarminni frá öðrum menningarheimum. Ég lauk náminu 2001 með ritgerðinni Vanadís, Völva, Valkyrja – Images of the Divine from the Memory of an Islandic Woman. Ritgerðin fjallar um leitina að þráðum fornevrópskrar gyðjumenningar, sem hafa lifað og lifa enn í íslenskri menningu.

Um tíma stundaði ég nám í nútímasjamanisma hjá Lynn V. Andrews, Carlos Castaneda og fleirum í Ameríkunni og bætti síðar við þá þekkingu mína hjá Caitlín Matthews í Englandi, en Caitlín hefur í samstarfi við eiginmann sinn John Matthews sérhæft sig í keltneskum fræðum, þ.á.m. sjamanisma. 

Ég starfaði á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að loknu náminu í félagsráðgjöf. Stýrði svo íslenska hluta norræna jafnréttisverkefnisins Brjótum múrana frá 1985-1990. Kenndi eitt ár við Gagnfræðaskóla Akureyrar og var svo fyrsti jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akureyrar til 1995. Þá brá ég mér til San Fransiskó í nám og bjó þar í rúm tvö ár. Eftir námið í San Fransiskó stýrði ég Menntasmiðjunni um skeið og síðan Jafnréttisstofu til ársins 2003.  

Ég hef um áratuga skeið starfað að málefnum kvenna og jafnrétti kynjanna á ýmsum vettvangi. Í því sambandi hef ég lagt áherslu á að þróa óhefðbundnar aðferðir í fullorðinsfræðslu, með sérstakri áherslu á námsnálgun kvenna og sjálfsstyrkingu. Í samvinnu við vinkonu mína Karólínu Stefánsdóttur var námskeiðið Lífsvefurinn spunnið, ofið og haldið fyrir konur um allt land og víðar. Menntasmiðju kvenna stofnaði ég í starfi mínu sem jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akureyrar 1994 og hef þróað áfram ásamt fleiri góðum konum. Ég hef verið virk í kvennahreyfingunni og stjórnmálum, tók m.a. þátt í stofnun Jafnréttishreyfingarinnar á Akureyri, Kvennaframboðsins á Akureyri og Kvennalistans og hef tvívegis setið í bæjarstjórn Akureyrar, fyrst fyrir Kvennaframboðið og síðar fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð.

Síðustu ár hef ég verið með eigin rekstur undir heitinu Vanadís. Þú getur fræðst nánar um  verkefnið Vanadís - rætur okkar, draumar og auður, á þessari heimasíðu. 2006 tók ég einnig þátt í að koma á fót tveimur félögum, sem eru nú ríkur hluti lífs míns, Mardöll - félag um menningararf kvenna og Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi eða AkureyrarAkademían. Þriðja félagið sem ég starfa fyrir er Félag um menntasmiðjur.

Síðustu ár hef ég verið með aðstöðu í húsnæði Akademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti. Þar hef ég skrifað, veitt ráðgjöf, haldið námskeið o.fl. Um þessar mundir (haustið 2011) er ég að flytja mig um set til höfuðborgarinnar, þar sem ég þróa reksturinn áfram, með námskeiðum, fyrirlestrum, ráðgjöf og hópavinnu.

Ég er móðir einnar dóttur, Sunnu sem fæddist í þennan heim 1983, og amma Úlfs Bjarna, sem fæddist 2006. Ég bý og starfa nú mest á höfuðborgarsvæðinu, en held enn tengslum norður á Akureyri, og er með "starfsstöðvar víðar um land og heim. Þegar ég mögulega get dvel ég í sælureitnum mínum, Sellandi í Fnjóskadal, þar sem ég stunda skriftir, undirbý námskeið og rækta lífsgarðinn minn. 

Deildarval

Framsetning efnis

Innskráning