Vitið þér enn - eða hvað? Norrænn styrkur til ráðstefnu 2011
Almennt - miðvikudagur 12.maí.10 09:32 - Lestrar 629

Viðburðaröðin sem hófst vorið 2009 heldur áfram í sumar og haust, með ótal spennandi viðburðum, námskeiðum, uppákomum, sýningum og þingum. Vanadís hefur verið virkur þátttakandi í þessu verkefni frá upphafi og Valgerður mun stýra undirbúningi ráðstefnunnar, sem einnig verður spennandi listviðburður. Hún verður undirbúin í samvinnu við ýmsa aðila hérlendis og erlendis. Nú þegar er komið á samstarf við AkureyrarAkademíuna, Jafnréttisstofu, Handraðann, Norrænu upplýsingaskrifstofuna og Listasumar og nokkrar fræðikonur, listakonur og menningarfrömuði á Norðurlöndum, en áætlað er að efna til enn víðara samstarfs á næstu vikum og mánuðum.
Fylgist með framvindunni á www.mardoll.blog.is og hér á síðunni


