Vanadísarsaga í ReykjavíkurAkademíunni
JL-húsinu
Föstudaginn 5. febrúar kl. 12:05 - 13:00
Fyrirlesturinn er öllum opinn
Sögurnar og goðsagnirnar sem við erfðum og köllum okkar, eru skráðar minningar einstaklinga úr ýmsum samfélögum, en sem byggðu Ísland frá 9.öld. Flestar eru skráðar af kristnum körlum einhverjum öldum eftir að sögurnar urðu til og þau sem hafa túlkað þær á síðustu öldum, gera það flest út frá karllægum, kristnum, bókmenntalegum, vestrænum, línulegum og rökrænum viðhorfum.
MA-ritgerð Valgerðar, The Saga of Vanadís, Völva and Valkyrja - Images of the Divine from the Memory of an Islandic Woman, kom út á bók hjá Lambert Academic Publishing í Þýskalandi 2009. Þar setur Valgerður fram nýja túlkun á sögunum og goðsögnunum og rennur Völuspá eins og rauður þráður í gegnum verkið. Gyðjan og konan eru í forgrunni, draumurinn í bakgrunni. Bókin fjallar í raun um leitina að þráðum fornevrópskrar gyðjumenningar, sem hafa lifað og lifa enn í íslenskri menningu.
Sagan er rakin allt aftur til tímans „fyrir stríð" (sbr. „Það man hún fólkvíg fyrst í heimi") þegar jafnvægi virðist hafa ríkt milli hinnar villtu náttúru og manngerðs samfélags og milli kvenna og karla, og byggir hún þar m.a. á kenningum litháensku fræðikonunnar Mariju Gimbutas.


