Vanadís - námskeið og ráðgjöf 2010
Vanadís býður upp á fjölbreytt úrval af námskeiðum, hópavinnu og einkatímum á nýju ári. Leiðbeinandi og ráðgjafi er Valgerður H. Bjarnadóttir.
Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur
Í janúar byrjar 20 klst (6 skipti) námskeið, sem síðan er hægt að bæta við 40 klst námi fyrir konur sem vinna með konur. Tímasetningar auglýstar síðar.
Verð kr. 25.000 (20 klst) og 40 þúsund fyrir 40 klst viðbótarnámið
Lífsvefurinn er námskeið fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt. Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar.
Markmiðin eru m.a. að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið; læra leiðir til betri samskipta; styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína; og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.
Viðbótarnámið er sérstaklega hugsað fyrir konur sem starfa á einn eða annan hátt að því að styrkja aðrar konur, en það er þó opið öllum konum og nýtist einnig vel í eigin þroskaferli.
Draumar - auður svefnsins (4 klst og 12 klst)
Verð kr. 5.000 (4 klst) og 15.000 (12 klst)
Okkur dreymir öll, í hvert sinn sem við sofum. Styttra námskeiðið er kynning á hlutverki og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Kynntar verða einfaldar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og vinna með drauma.
Lengra námskeiðið fjallar um hlutverk og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Á námskeiðinu verður unnið í hópum og pörum, og þátttakendur tileinka sér ýmsar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og skoða drauma. Rýnt verður í táknmál draumanna og kenningar um drauma allt frá formæðrum okkar og -feðrum, til frumbyggja Ástralíu og arftaka Jung.
Örnámskeið
Öðru hverju býður Vanadís upp á örnámskeið (2 - 4 tímar ), smásýnishorn af lengri námskeiðum. Námskeiðin eru auglýst á póstlista Vanadísar og heimasíðunni http://www.vanadis.is/.
Verð frá kr. 2000.-
Önnur námskeið
Námskeiðin Maríurnar, Inanna, Avalon, Speglar sagnanna, Heiður o.fl. (sjá yfirlit á http://www.vanadis.is/ ) eru í boði fyrir hópa sem vilja gera eitthvað skemmtilegt og gefandi saman.
Verð frá kr. 13.000.-
Gyðjukvöld í samstarfi við Mardöll
Í kringum hverja vaxandi hálfmánu árið 2010 mun Vanadís, í samstarfi við Mardöll - félag um menningararf kvenna, bjóða upp á kynningarkvöld um gyðjur og aðrar goðkynja kvenverur menningararfs okkar. Sjá dagsetningar á http://www.mardoll.blog.is/ og http://www.vanadis.is/
Verð kr. 1300.-
Draumamorgnar
Vanadís býður þeim sem hafa sótt draumanámskeiðin og vilja læra að vinna meira með draumana sína, upp á þjálfun í hópavinnu á morgnana í vetur. Hist verður einu sinni í mánuði, tvo tíma í senn og unnið með einn til tvo drauma í hvert skipti. Gert er ráð fyrir 5 - 7 í hvorum hópi og að hóparnir verði tilbúnir að starfa sjálfstætt eftir 4 - 5 skipti í þjálfun.
Verð fyrir hvert skipti er kr.1500.
Ráðgjöf og handleiðsla
Valgerður H. Bjarnadóttir býður upp á ráðgjöf og handleiðslu fyrir einstaklinga, pör og hópa. Einnig er hægt að fá einkatíma í draumavinnu eða annarri vinnu sem tengist því efni sem námskeiðin taka til.
Skráning og nánari upplýsingar í tölvupósti á netfangið vanadis@vanadis.is og í síma 895 3319
Athugið að stéttarfélög, Vinnumálastofnun og sumir vinnuveitendur endurgreiða gjöld fyrir námskeið af þessu tagi og fyrir handleiðslu.


