Fréttir

Uppskeruhátíð Mardallar undir Kerlingu

Uppskeruhátíð Mardallar verður haldin á Uppskerumánu í Fífilbrekku undir Kerlingu í Eyjafjarðarsveit, sunnudaginn 4. október milli kl. 12 og 17.

Félagsfreyjur Mardallar munu bjóða upp á kynningu á starfsemi sinni og
varning af ýmsu tagi, m.a. afurðir jarðar, handverk og fleira. Náttúruleg kjötsúpa verður á hlóðunum, ketilkaffi, ilmandi brauð og sætabrauð. Eldsmíði, jurtalitun, draumaspeglum og alls kyns ævintýr fyrir alla aldurshópa.

 


Tilvalið er fyrir konur sem vilja gerast félagar í Mardöll að koma og kynna sér starfsemina.

Fífilbrekka undir Kerlingu er vestan megin Eyjafjarðar, nálægt Grund. Akið Holtselsafleggjarann og fylgið merkingum. Sjá einnig á http://www.mardoll.blog.is/



Deildarval

Framsetning efnis

Innskráning