Fréttir

Þórunn og völvan - Síðustu sýningar

Nú fer hver að verða síðastur/síðust að sjá og hlusta á þær Þórunni hyrnu og völvuna Heiði í Laxdalshúsi. Síðustu sýningar sumarsins verða fimmtudaginn 26.08. kl.18 og 20 og svo á Akureyrarvöku (laugardag) á sömu tímum, en þá á Þórunn einnig von á leynigesti í heimsókn. Ekki missa af heimsókn þessara fornu kvenna.Þórunn hyrna er kl.16 og Völuspá kl.18

Hvor sögustund er um hálftími og eftir hvora sýningu er boðið upp á umræður í annan hálftíma.   Svo er tilvalið að fá sér matarbita úr héraði af smáréttamatseðli Laxdalshúss milli sýninga. Alls kyns tilboð.

Verð: Ein sýning kr. 1500, báðar sýningar kr.2500



Deildarval

Framsetning efnis

Innskráning