Fréttir

Ráðgjöf og handleiðsla

Valgerður býður upp á ráðgjöf og handleiðslu fyrir einstaklinga og hópa í einkalífi og starfi. Meðal þess sem lögð er áhersla á er að vinna með sjálfsstyrk og sjálfsmynd, tengsl, samskipti, markmið og lífstilgang.

 Við vinnum úr kreppum og áföllum, skilgreinum möguleika og hæfileika og finnum leiðir til tjáningar og sköpunar. Við skoðum ytri og innri samskipti, lífssögu, áhugasvið og síðast en ekki síst drauma og langanir.

Í handleiðslu fyrir pör og hópa er m.a. lögð áhersla á þjálfun í jákvæðri hlustun og athygli, þróun sjálfsmyndar, möguleika og tækifæri, markmið og hindranir, lífsgildi og -tilgang.

Í ráðgjafarvinnu nýtum við m.a. drauma næturinnar, hugarferðir, sagnir og ævintýri, verkefni og skapandi tjáningu, í bland við samtalið.



Deildarval

Framsetning efnis

Innskráning