Nįmskeiš Vanadķsar Akureyri - vormisseri 2011
Nú liggur fyrir áætlun um námskeið Vanadísar á Akureyri á vormisseri 2011 (sjá hér að neðan). Á námskeiðunum er lögð áhersla á að tengja menningu, forna og nýja, við sögu og líf þátttakenda. Sum leggja megináherslu á fræðilega þekkingu og persónulega heimspeki, má þar m.a. nefna Maríurnar, Inönnu og Gyðjuna í gegnum aldirnar. Önnur miða fyrst og fremst að því að örva persónulegan vöxt, tjáningu, sjálfsstyrkingu og sjálfsþekkingu, en tengjast einnig fornum fræðum, menningar- og hugmyndaþróun. Það gildir t.d. um draumanámskeiðin og Lífsvefinn og Heiði - seið hún kunni.
Yfirlit yfir námskeið á Akureyri á vorönn 2011
athugið þó að tímasetningar geta hnikast til og ekki er tryggt að næg þátttaka verði til að halda öll boðuð námskeið.
Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur
20 klst grunnnámskeið
Tímar: 1.,15.og 29.mars, 12. og 26.apríl kl.18 - 21 og 10.maí 17 - 22
Verð kr. 35.000 (20 klst)
Lífsvefurinn er námskeið fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt. Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar.
Markmiðin eru m.a. að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið; læra leiðir til betri samskipta; styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína; og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.
Lífsvefurinn - framhald 40 klst
Tímar: 23.febrúar, 23. og 30.mars, 13. og 27.apríl og 11.maí 18 - 21 og helgina 4.- 6.mars
Verð 50.000 (40 klst) auk kostnaðar við fæði og gistingu í helgarlotunni
Viðbótarnámið er sérstaklega hugsað fyrir konur sem starfa á einn eða annan hátt að því að styrkja aðrar konur, en það er þó opið öllum konum og nýtist einnig vel í eigin þroskaferli.
Farið er dýpra í alla helstu þætti grunnnámskeiðsins og þjálfuð færni í að nýta drauma, sagnir og aðra „spegla" til aukinnar sjálfsþekkingar og þroska.
Draumar - auður svefnsins
- 4 klst örnámskeið 26.janúar kl. 18 - 22
- 12 klst: laugardag 29.jan. 10 - 16 og miðvikudaga 2.og 9.febrúar 18 - 21
- Verð kr. 6.000 (4 klst) og 18.000 (12 klst)
Okkur dreymir öll, í hvert sinn sem við sofum.
Styttra námskeiðið er kynning á hlutverki og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Kynntar verða einfaldar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og vinna með drauma.
Lengra námskeiðið fjallar um hlutverk og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Á námskeiðinu verður unnið í hópum og pörum, og þátttakendur tileinka sér ýmsar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og skoða drauma. Rýnt verður í táknmál draumanna og kenningar um drauma allt frá formæðrum okkar og -feðrum, til frumbyggja Ástralíu og arftaka Jung.
Inanna og Enhedúanna - heimsins elstu ljóð
12 klst : 20.janúar og 3.febrúar kl.18 - 21 og 30.janúar kl.16 - 22
Verð kr. 18.000
Inanna eða Ishtar, sem kölluð var drottning himins og jarðar, var dýrkuð í Miðausturlöndum, og raun öllum þeim menningarheimi sem hin fornu stórveldi Súmería og Babýlónía höfðu áhrif á, um árþúsunda skeið.
Á námskeiðinu kynnumst við Inönnu og hofgyðjunni Enhedúönnu, elsta þekkta ljóðskáldi veraldar, og ljóðunum sem varðveita 5000 ára trú og tilfinningar.
Heiður - seið hún kunni
Grunnnámskeið um sjamanisma fyrir 21. öldina
Tímar: 3.,17. og 31.mars kl.18 - 21 og 16.apríl kl.10 - 17 (utanbæjar) alls 16 klst
Verð kr. 25.000.-
Á námskeiðinu munum við fræðast lítillega um þann sjamanisma sem er lifandi í dag og sögu hans í menningu okkar sjálfra. Aðaláherslan er þó á verkefni sem tengja okkur við náttúruna og veruleikann. Við lærum m.a. um heimana þrjá og vættir þeirra, máttardýr og aðrar hamingjur, förum í draumferðir, sköpum og ræðum saman til að blása lífi í minni völvunnar og vitkans sem í okkur býr, vekja seiðinn úr dvala.
Maríurnar - kvenímyndin í trúnni
Tímar: 14.og 28.apríl; 12. og 19.maí kl.18 - 21
Verð kr. 18.000
María hefur mörg andlit í trúnni, hún er meyjan, hóran, móðirin, lærimeyjan, ástkonan og eiginkonan, hin synduga og syndlausa, iðrandi og huggandi, og allt í senn.
Hverjar voru þessar konur? Hvernig eru þær skilgreindar í Biblíunni, í öðrum fornritum, í kirkjudeildum, meðal fræðifólks og almennings? Hvaða hlutverk hafa þær og geta haft í nútímanum? Hvert er samhengi Maríu og gyðjunnar, sem birtist m.a. í Inönnu, Ishtar, Isis, Asherah, Shekinah, Sófíu, Brighid, Frigg og Freyju.
Á námskeiðinu fjöllum við um þá kvenímynd sem birtist og þróast í kristinni trú og skoðum hvaða áhrif hún kann að hafa á sjálfsímynd okkar og stöðu í samfélaginu.


