Fréttir

Heiður, seið hún kunni - Dalsá, Mosfellsdal

Heiður - seið hún kunni, grunnnámskeið um sjamanisma fyrir 21.öldina 

20. og 27.september og 11. og 12.október kl.18 - 22, alls 16 klst.

Námskeiðið er haldið í nærandi, spennandi og umvefjandi umhverfi Dalsár í Mosfellsdal. 

 

Seiður eða sjamanismi hefur verið mikilvægur hluti daglegs lífs, menningar og siða kvenna og karla um allan heim frá örófi alda. Enn er sjamanismi lifandi meðal frumbyggja heimsins, í Ástralíu, Ameríku, Asíu, Afríku og á Norðurhjara Evrópu, meðal Sama. Þörfin fyrir að blása lífi í glóðir þessa lífsforms er að vakna meðal íbúa vestrænna iðn- og markaðsríkja og þá kemur í ljós að það lifir enn í glóðunum. Ef kafað er í menningararfinn finnum við minni seiðsins bæði í keltneskum og norrænum rótum okkar.

Á námskeiðinu munum við fræðast lítillega um þann sjamanisma sem er lifandi í dag og sögu hans í menningu okkar sjálfra. Aðaláherslan er þó á verkefni sem tengja okkur við náttúruna og veruleikann. Við lærum m.a. um heimana þrjá og vættir þeirra, máttardýr og aðrar hamingjur, förum í draumferðir, sköpum og ræðum saman til að blása lífi í minni völvunnar og vitkans sem í okkur býr, vekja seiðinn úr dvala.

Verð kr. 25.000.-

Skráning og nánari upplýsingar vanadis@vanadis.is og í síma 895 3319



Mynd augnabliksins

grailmaiden.jpg

Heimsóknir

Í dag: 25
Samtals: 472886

Dagatal

« Júní 2010 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930 

Könnun

Hefurðu áhuga á námskeiðum Vanadísar?







Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Póstlistar


Deildarval

Framsetning efnis

Innskráning