Fréttir

Mary Daly lįtin - 81 įrs

Ein af merkustu manneskjum nútímans, femínistinn Mary Daly, lést 3.jan s.l. Þótt Daly hafi ekki verið vel þekkt hér á landi þá hafði hún veruleg áhrif á þróun kvennabaráttunnar, var frumkvöðull í kvennaguðfræði, og hélt áfram að ógna karlveldinu fram á síðasta dag.

Orð hennar: "There are and will be those who think I have gone overboard. Let them rest assured that this assessment is correct, probably beyond their wildest imagination, and that I will continue to do so", reyndust sönn.

Mary Daly hefur verið mér ómetanleg fyrirmynd og hvatning í minni kvennabaráttu og fræðistörfum ... ekki síst hvað varðar endurskoðun tungumáls karlveldisins. Um leið og ég þakka henni fyrir það finn ég hvatningu til að rifja upp eitt og annað af hennar stórkostlegu skrifum og skilaboðum og hvet ykkur til að gera eins.



Deildarval

Framsetning efnis

Innskrįning