Mardöllur og Lydia Ruyle sýna á Fólkvangi

Með Mardöllum sýnir Lydia Ruyle, heimskona og listakona sem hefur málað gyðjur heimsins á silki og fylgir þeim eða sendir þær á fund kvenna víða um heiminn. 13 af gyðjum Lydiu munu sækja okkur heim á Fólkvang Mardallar og héðan fara þær svo til Spánar og síðar Bretlands.
Mardallarsýningin er ein af mörgum spennandi listsýningum sem verða í Listagilinu og víðar í tilefni af Fólkvanginum. Í Mjólkurbúðinni verður Mardöll með rótarverk, í Deiglunni verður bókum kvenna gert hátt undir höfði. Í Populus Tremula mun listafólk heiðra listagyðjuna og rætur sínar, í Gallerý + verður Guðrún Pálína með sýninguna Rætur og á Goya Tapas Bar munu ÁLFkonur sýna ljósmyndir sem tengjast þeirra rótum. Í Flóru, Kristínar Kjartansdóttur, sýnir Arna Vals innsetninguna Staðreynd 4.
Allar þessar sýningar opna 17.júní, en aðaldagskrá Fólkvangsins hefst 19.júní á Kvenréttindadaginn. Sjáið meira um Fólkvanginn og sýningarnar á www.mardoll.is


