Lífsvefurinn í Danmörku

Í Soloperasalen, Møn 22. - 24.október 2010
Nú fer Vanadís með Lífsvefinn til Manar. Lífsvefurinn er námskeið fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt í einkalífi og starfi. Þetta nám hentar afar vel fyrir konur sem í störfum sínum styðja við aðrar konur (sjá nánar undir NÁMSKEIÐ hér til vinstri á síðunni)
Námskeiðið fer fram í Soloperasalen í töfrandi umhverfi eyjarinnar Manar, suður af Sjálandi, föstudaginn 22.október kl.19 til sunnudags 24.október kl.15 (ca. 20 klst)
Sjá http://www.soloperasalen.dk/ og t.d. http://www.insula-moenia.dk/index.html
Verð er DK 3300 fyrir námskeiðið með máltíðum. Nóg er af góðum gistimöguleikum í nágrenninu. Umsóknarfrestur til 15.september. Athugið að þátttaka er takmörkuð (hámark 14 konur) og því er ráð að skrá sig sem fyrst.
Skráning á vanadis@vanadis.is eða með því að smella á hnappinn "Skráning á námskeið" hér til vinstri á síðunni.
Umsagnir um Lífsvefinn og önnur námskeið Vanadísar:
"Námskeið Vanadísar eru fyrir mér leið til að kynnast sjálfri mér og öðrum .... Valgerði tekst á sinn einstaka og lifandi hátt að miðla þessari þekkingu af hjartans list og andans auð þannig að hver sem til hennar sækir hlýtur að geta komist að einhverju nýju um sjálfa/n sig - öðlast meiri sjálfsþekkingu, uppgötvað ný sjónarhorn, séð fleiri möguleika, aðrar leiðir..."
„Lífsvefurinn vakti mig til umhugsunar um það hver er ég - út frá sögu - menningu - fjölskyldusögu - lífsviðhorfi (ræturnar mínar) og þar með styrkti námskeiðið mig til aukins sjálfsstyrks og vitundar."


