Fréttir

Lķfsvefurinn į Akureyri 16.mars

Nýtt grunnnámskeið í Lífsvefnum hefst á Akureyri 16.febrúar n.k. Lífsvefurinn er nám fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt í einkalífi og starfi.  Þetta nám hentar afar vel fyrir konur sem í störfum sínum styðja við aðrar konur.

 

Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar.

Markmiðin eru m.a. að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið;  læra leiðir til skapandi samskipta;  styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína;  og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.

Skráning og nánari upplýsingar hér á síðunni eða með því að senda póst á  vanadis@vanadis.is. Einnig er hægt að skrá sig í síma 895 3319

Tími, staðsetning og verð : Miðvikudagar 16.og 30.mars, 13. og 27.apríl kl.17 - 20 og laugardagur 30.apríl. kl.10 - 18

Kennt er í AkureyrarAkademíunni (gamla Húsmæðraskólanum), Þórunnarstræti 99

Verð er kr.35.000 ATH! flest stéttarfélög og sumir vinnuveitendur styrkja námskeiðið.



Mynd augnabliksins

tn_inanna564.jpg

Heimsóknir

Ķ dag: 72
Samtals: 626187

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Į nęstunni

Engir višburšir į nęstunni

Könnun

Hefuršu įhuga į nįmskeišum Vanadķsar?







Sjį nišurstöšur
Sjį allar kannanir

Póstlistar


Deildarval

Framsetning efnis

Innskrįning