Fréttir

Lífsvefurinn - sjálfsþekkingarnám fyrir konur

Spor í sandi: Lene Zacheriassen
Spor í sandi: Lene Zacheriassen
Næsta Lífsvefsnámskeið hefst í Reykjavík 4.febrúar n.k. Námskeiðið er 20 klst, laugardagar 4. febrúar og 10.mars kl. 10 til 15:30 og mánudagarnir 13., 20. og 27.febrúar kl. 19 - 22

Lífsvefurinn er námskeið um konur, fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt í einkalífi og starfi. Grunnurinn í Lífsvefnum er heildarhugsun og hringurinn er nýttur sem grunnform.

Helstu efnisþættir eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar; rætur, lífstilgangur og framtíðarmöguleikar.


Byggt er á eigin kvenlægri þekkingu og reynslu, auk kenninga og hugmynda annarra kvenna og karla með ólíka menntun og sjónarhorn.

Áhersla er lögð á að kynna þátttakendum skapandi lífssýn og ekki síst nýja sýn á sjálfar sig og tengsl sín við rætur, núverandi umhverfi og framtíð. Í gegnum ýmsa spegla opnast gluggar sem veita skilning á stöðu kvenna og hverrar einstakrar konu og útsýni til nýrra möguleika. Þessi þekking verður að uppistöðu sem þátttakendur nýta til að vefa ný munstur í sinn lífsvef, skapa sér nýja sögu.



Mynd augnabliksins

blabervis.jpg

Heimsóknir

Í dag: 133
Samtals: 605473

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Könnun

Hefurðu áhuga á námskeiðum Vanadísar?







Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Póstlistar


Deildarval

Framsetning efnis

Innskráning