Fréttir

Lífsvefurinn - sjálfsþekkingarnám fyrir konur

Mandorla of the Spinning Goddess - Judith Anderson
Mandorla of the Spinning Goddess - Judith Anderson
Um þessar mundir eru á þriðja tug kvenna í tveimur hópum í námi um Lífsvefinn. Námið mun standa í allan vetur og er annars vegar sjálfsnámsferli hverrar konu, hins vegar eru þær að læra að nýta sér Lífsvefsnámsefnið í sínum ólíku störfum og öðru því sem þær eru að fást við í lífinu. Flestar vinna á einn eða annan hátt með konum, eru ráðgjafar, kennarar, starfa að heildbrigðismálum o.fl. aðrar eru í háskólanámi og vilja læra að flétta Lífsvefsnámið inn í viðfangsefni sín.  Annar hópurinn er skipaður konum sem allar hafa sótt námskeið um Lífsvefinn einhvern tíman áður, hinn er byrjendahópur. Báðir hóparnir eru fullsetnir en vegna ótal fyrirspurna verður væntanlega reynt að koma á þriðja hópnum ekki síðar en um áramót. Nánari upplýsingar í vanadis@vanadis.is eða síma 895 3319.  


Deildarval

Framsetning efnis

Innskráning