Fréttir

Heišur - seiš hśn kunni

22.mars hefst grunnnámskeið um sjamanisma á Akureyri. Námskeiðið er 12 klst og verður haldið í AkureyrarAkademíunni þriðjudagana 22.mars, 5.og 19.apríl og 3.maí, kl.18 - 21

Leiðbeinandi er Valgerður H. Bjarnadóttir

Seiður eða sjamanismi hefur verið mikilvægur hluti daglegs lífs, menningar og siða kvenna og karla um allan heim frá örófi alda. Enn er sjamanismi lifandi meðal frumbyggja heimsins, í Ástralíu, Ameríku, Asíu, Afríku og á Norðurhjara Evrópu meðal Sama. Þörfin fyrir að blása lífi í glóðir þessa lífsforms er að vakna meðal íbúa vestrænna iðn- og markaðsríkja og þá kemur í ljós að það lifir enn í glóðunum. Ef kafað er í menningararfinn finnum við minni seiðsins bæði í keltneskum og norrænum rótum okkar.

Á námskeiðinu munum við fræðast lítillega um þann sjamanisma sem er lifandi í dag og sögu hans í menningu okkar sjálfra. Aðaláherslan er þó á verkefni sem tengja okkur við náttúruna og veruleikann. Við lærum m.a. um heimana þrjá og vættir þeirra, máttardýr og aðrar hamingjur, förum í draumferðir, sköpum og ræðum saman til að blása lífi í minni völvunnar og vitkans sem í okkur býr, vekja seiðinn úr dvala.

Námskeiðið er 12 klst. - Verð kr. 20.000.-

Skráning og nánari upplýsingar í vanadis@vanadis.is og í síma 895 3319



Mynd augnabliksins

vhb2.jpg

Heimsóknir

Ķ dag: 72
Samtals: 626187

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Į nęstunni

Engir višburšir į nęstunni

Könnun

Hefuršu įhuga į nįmskeišum Vanadķsar?







Sjį nišurstöšur
Sjį allar kannanir

Póstlistar


Deildarval

Framsetning efnis

Innskrįning