Heiður - seið hún kunni

Grunnnámskeið um sjamanisma fyrir 21. öldina
Leiðbeinandi: Valgerður H. Bjarnadóttir
Tími: miðvikudagar 2., 9., 16., 23. og 30.júní, kl.18 - 21
Staðsetning: Akureyri og Fnjóskadalur
Heiði hana hétuhvars til húsa kom
völu velspáa
vitti hún ganda;
seið hún kunni
seið hún leikin
... Völuspá
Seiður eða sjamanismi hefur verið mikilvægur hluti daglegs lífs, menningar og siða kvenna og karla um allan heim frá örófi alda. Enn er sjamanismi lifandi meðal frumbyggja heimsins, í Ástralíu, Ameríku, Asíu, Afríku og á Norðurhjara Evrópu, meðal Sama. Þörfin fyrir að blása lífi í glóðir þessa lífsforms er að vakna meðal íbúa vestrænna iðn- og markaðsríkja og þá kemur í ljós að það lifir enn í glóðunum. Ef kafað er í menningararfinn finnum við minni seiðsins bæði í keltneskum og norrænum rótum okkar.
Á námskeiðinu munum við fræðast lítillega um þann sjamanisma sem er lifandi í dag og sögu hans í menningu okkar sjálfra. Aðaláherslan er þó á verkefni sem tengja okkur við náttúruna og veruleikann. Við lærum m.a. um heimana þrjá og vættir þeirra, máttardýr og aðrar hamingjur, förum í draumferðir, sköpum og ræðum saman til að blása lífi í minni völvunnar og vitkans sem í okkur býr, vekja seiðinn úr dvala.
Námskeiðið er 15 klst. - Verð kr. 20.000.-


