Fréttir

Heišur - seiš hśn kunni

Mynd: Lene Zachariassen
Mynd: Lene Zachariassen

Grunnnámskeið um sjamanisma fyrir 21. öldina, hefst í Reykjavík 15.febrúar

Leiðbeinandi: Valgerður H. Bjarnadóttir

Miðvikud 15. og 22.2. og 14.3. kl.18:30 - 21:30 og 3.3. kl.10 - 16

Seiður eða sjamanismi hefur verið mikilvægur hluti daglegs lífs, menningar og siða kvenna og karla um allan heim frá örófi alda.

Enn er sjamanismi lifandi meðal frumbyggja heimsins, í Ástralíu, Ameríku, Asíu, Afríku og á Norðurhjara Evrópu, meðal Sama. Þörfin fyrir að blása lífi í glóðir þessa lífsforms er að vakna meðal íbúa vestrænna iðn- og markaðsríkja og þá kemur í ljós að það lifir enn í glóðunum. Ef kafað er í menningararfinn finnum við minni seiðsins bæði í keltneskum og norrænum rótum okkar. 

Á námskeiðinu munum við fræðast lítillega um þann sjamanisma sem er lifandi í dag og sögu hans í menningu okkar sjálfra. Aðaláherslan er þó á verkefni sem tengja okkur við náttúruna og veruleikann. Við lærum m.a. um heimana þrjá og vættir þeirra, máttardýr og aðrar hamingjur, förum í draumferðir, sköpum og ræðum saman til að blása lífi í minni völvunnar og vitkans sem í okkur býr, vekja seiðinn úr dvala.

Námskeiðið er 15 klst    Verð kr. 28.000.- 

Skráning og nánari upplýsingar: vanadis@vanadis.is og í síma 895 3319

Einnig er hægt að skrá sig hér á síðunni.



Mynd augnabliksins

ungavalka.jpg

Heimsóknir

Ķ dag: 72
Samtals: 626187

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Į nęstunni

Engir višburšir į nęstunni

Könnun

Hefuršu įhuga į nįmskeišum Vanadķsar?







Sjį nišurstöšur
Sjį allar kannanir

Póstlistar


Deildarval

Framsetning efnis

Innskrįning