Haustið hjá Vanadísi

Nú fer í hönd tími námskeiða, sjálfsskoðunar og uppbyggingar. Vanadís býður upp á námskeið og ráðgjöf af ýmsu tagi, sjálfsstyrkingu kvenna, drauma karla og kvenna, innlit í forna menningu o.fl. Með því að smella á "lesa meira" finnurðu yfirlit yfir þau námskeið sem búið er að festa í haust, en einnig geta hópar pantað sérsniðin námskeið fyrir sig. Sjá nánar um önnur námskeið Vanadísar undir hlekknum NÁMSKEIÐ hér til vinstri.
Lífsvefurinn - sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur
Námskeiðið er 20 klst Verð kr. 25.000
Lífsvefurinn er námskeið fyrir konur sem vilja læra að þekkja sjálfar sig betur og ná að vefa hinn margþætta vef lífsins á markvissan hátt. Helstu efnisþættir námskeiðsins eru: sjálfsþekking, sjálfsmynd og samskipti; saga, hlutverk og staða kvenna; heilsa kvenna og tilfinningar; draumar og goðsagnir; fyrirmyndir og fordómar. Markmiðin eru m.a. að: læra að þekkja og virða sjálfa sig; læra að greina og vinna úr því sem er erfitt og setja sér raunhæf markmið; læra leiðir til betri samskipta; styrkja jákvæða kvenímynd/sjálfsmynd sína; og þekkja sögu sína, lífsgildi, lífstilgang, rétt sinn og skyldur.
Draumar - auður svefnsins (4 klst)
Fimmtudagskvöld 10.október kl.15 - 19 Verð kr. 5.000
Stutt kynning á hlutverki og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Okkur dreymir öll, í hvert sinn sem við sofum, en munum það hins vegar ekki alltaf. Kynntar verða einfaldar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og vinna með drauma.
Draumar - auður svefnsins ( 12 klst)
Námskeiðið er 12 klukkustundir (4 skipti) og er haldið á þriðjudögum í nóvember kl.18-21.
Verð kr. 15.000
Námskeiðið fjallar um hlutverk og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Okkur dreymir öll, í hvert sinn sem við sofum, en munum það hins vegar ekki alltaf. Á námskeiðinu verður unnið í hópum og pörum, og þátttakendur tileinka sér ýmsar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og skoða drauma. Rýnt verður í táknmál draumanna og kenningar um drauma allt frá formæðrum okkar og -feðrum, til frumbyggja Ástralíu og arftaka Jung. Þátttakendur verða virkir í að þróa námskeiðið og velja úr ýmsum þeim aðferðum sem þekktar eru til að kanna þetta ótakmarkaða og ævintýralega land svefnsins.
Örnámskeið
Öðru hverju í haust mun Vanadís bjóða upp á örnámskeið (eitt kvöld, eftirmiddag, hádegi eða morgun), smásýnishorn af lengri námskeiðum. Námskeiðin verða auglýst á póstlista Vanadísar og heimasíðunni http://www.vanadis.is/.
Fyrsta örnámskeiðið, Helgióður, verður föstudaginn 9. október kl. 17 - 19 og fjallar um erótísk ástarljóð súmersku gyðjunnar Inönnu. Verð kr.2000
Draumamorgnar
Vanadís mun bjóða þeim sem hafa sótt draumanámskeiðin og vilja vinna með draumana sína upp á hópavinnu á morgnana í vetur. Boðið verður upp á einn hóp á þriðjudagsmorgnum og annan á laugardagsmorgnum. Hist verður einu sinni í mánuði, tvo tíma í senn og unnið með einn til tvo drauma í hvert skipti. Gert er ráð fyrir 5 - 7 í hvorum hópi og verð fyrir hvert skipti er kr.1500.
Skráning og nánari upplýsingar á http://www.vanadis.is/ , með tölvupósti á netfangið vanadis@vanadis.is og í síma 895 3319
Athugið að stéttarfélög og sumir vinnuveitendur endurgreiða gjöld fyrir námskeið af þessu tagi og fyrir handleiðslu.
Vanadís hefur aðsetur í AkureyrarAkademíunni, Þórunnarstræti 99
Leiðbeinandi á öllum námskeiðunum er Valgerður H. Bjarnadóttir
Valgerður er félagsráðgjafi að mennt, með BA-gráðu í heildrænum fræðum með áherslu á draumafræði og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu með áherslu á norræna goðafræði og gyðjutrú. Hún hefur starfað að málefnum kvenna, kennslu og ráðgjöf í áratugi og hefur fjölþætta reynslu að baki.


