Gyðjusögur - örnámskeið um gyðjur veraldarsögunnar

Röð örnámskeiða um gyðjuna, haldin að Sóltúni 6, Reykjavík
15.nóvember, kl.19 - 22: Gyðjan mikla í Evrópu hinni fornu - kenningar Mariju Gimbutas
22.nóvember, kl.19 - 22: Inanna og Enhedúanna - heimsins elstu ljóð
29.nóvember, kl.19 - 22 : Freyja - vanadís, völva og valkyrja
8.desember (ath. fimmtudagur): Maríurnar - kvenímyndin í kristni
Í gegnum tíðina hefur mannkynið mótað sér myndir af almættinu til að endurspegla náttúruna og það lífsferli sem konur og karlar þessa heims ganga í gegnum, að mestu óháð tíma og rúmi.
Í árþúsundir hafði almættið mynd konu eða goðkynja veru sem var á stundum blendingur konu og dýrs, stundum var hún stjarna eða jörðin sjálf. Líklegt er að gyðjan hafi í hugum fólksins búið yfir öllum þeim eiginleikum sem lífið spannar, skapandi og eyðandi kröftum, blíðu og hörku. Hún var lífs- og dauðagyðja. Þegar karlveldið reis tóku guðir smám saman völdin, en hin mótsagnakennda, máttuga gyðja lifði áfram og lifir enn í trúarheimi fólksins. Inanna, Ísis, Aþena, Afródíta, Yemaya, Freyja, Frigg, María og Brighid. Þessar gyðjur og sögur þeirra og myndir eiga erindi við okkur í dag, eins og þær hafa átt erindi við konur og karla um allan heim í árþúsundir.
Í þessari örnámskeiðaröð um Gyðjuna mun Valgerður leiða okkur inn í heim sem er óháður tíma og rúmi, í gegnum fróðleik, spjall og hugleiðslur.
Verð kr.5.000.- fyrir hvert kvöld. Sértilboð á haustmisseri "þrjú fyrir tvö", þ.e. ef þú kemur tvö kvöld, þá færðu það þriðja frítt.
Valgerður H. Bjarnadóttir leiðir námskeiðin. Hún er með MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu með áherslu á norræna goðafræði og gyðjutrú.
Skráning og nánari upplýsingar á www.vanadis.is eða vanadis@vanadis.is. Einnig má hringja í 895 3319.


