Freyja - vanadís, völva og valkyrja
Almennt - þriðjudagur 29.nóv.11 00:00 - Lestrar 153

Þriðjudaginn 29.nóvember kl. 19 - 22, Sóltúni 6, Reykjavík
Gyðjan sem við köllum Freyju á sér langa og flókna sögu. Snorri segir í sinni Eddu að átrúnaður á Freyju lifi enn á 13.öld, en þó er nokkuð víst að flest sögubrotin og myndirnar sem varðveist hafa af þessari margbrotnu gyðju séu lituð af kristni og hugmyndum karlveldisins um konur.
Í bókinni The Saga of Vanadís, Völva and Valkyrja – Images of the Divine from the Memory of an Islandic Woman (sem kom út á bók hjá Lambert Academic Publishing í Þýskalandi 2009), set ég fram nýja túlkun á sögunum og goðsögnunum, nýti til samanburðar fornar gyðjusagnir veraldar og geri grein fyrir þremur ásjónum Freyju: Vanadísinni, völvunni og valkyrjunni. Á námskeiðinu verða þessar kenningar kynntar í gegnum sögur af Freyju og þátttakendur spegla sig í sögunum.
Skráning hér á síðunni eða á vanadis@vanadis.is og í síma 895 3319
Verð kr.5000.-


