Fréttir

Forsýning í gær

Þórunn hyrna við Laxdalshús
Þórunn hyrna við Laxdalshús
Forsýning var á sögustundum í Laxdalshúsi í gær á Jónsmessu. Þar sagði Þórunn hyrna sögu sína við góðar undirtektir viðstaddra og völvan Heiður kom í stutta heimsókn.

Eftir sýningarnar spunnust miklar umræður um rætur okkar, völvur og sterkar konur. Gestir lýstu ánægju með hingaðkomu þessara kvenna og með Laxdalshús.

Um helgina verða sögustundir bæði á íslensku og ensku. Sjá nánar í fréttinni hér á undan.

Hér eru nokkrar myndir frá forsýningunni á Jónsmessu

orunn_heilsar_gestum2_640

Hlín Bolladóttir, nýr bæjarfulltrúi heilsar upp á Þórunni

orunn_i_spjalli_640

Þórunn spjallar við gesti sem eru áhugasamir um rætur sínar

vlvan1_640

 Völvan seiðir

vlvanispjalli_640

og völvan Heiður náði líka að slá á létta strengi með áhugasömum gestum... sem vildu m.a. vita hvers konar fyrirbæri hún væri í raun

 



Deildarval

Framsetning efnis

Innskráning