Fornar sagnir og spár í Laxdalshúsi

Kvennaraddir fortíðar varpa ljósi á rætur okkar í elsta húsi Akureyrar
Valgerður í hlutverki völvunnar Heiðar og Þórunnar hyrnu
Sögustund undir súð í Laxdalshúsi (Kaffihús og sögusetur í innbæ Akureyrar), þar sem farið verður á fund við konur sem tengjast fornum rótum Íslendinga. Hvor sögustund er klukkutími. Annars vegar hittum við völvuna Heiði, sem segir söguna í hinu forna kvæði Völuspá og hins vegar Þórunni hyrnu, landnámskonu í Eyjafirði og formóður fjölmargra Íslendinga.
Laxdalshús opnar 17.júní en fyrsta sögustundin verður að kvöldi 24.júní. Reynt verður að bjóða upp á fastar sýningar tvisvar í viku í allt sumar. Ef eftirspurn verður mikil mun því verða mætt með aukasýningum flesta daga vikunnar. Einnig er hægt að panta sögustundir fyrir hópa utan fastra tíma. Hlé verður að mestu frá 11.júlí til 2.ágúst.
Aðgangseyrir kr.1.500
Sýn völvunnar
Þegar Óðinn leitaði til völvunnar í kreppunni - sagnir og veruleiki úr Völuspá
Völuspá er helsta trúarkvæði okkar úr heiðnum sið og hefur verið kallað fegursta kvæði allra tíma. Þar segir völvan frá því þegar Óðinn, æðsta goð Ása, kemur til hennar í öngum sínum. Hann hefur misst tökin í veröldinni og leitar svara hjá henni um orsakir, stöðu og afleiðingar gjörða goðanna. Hún kallar til goðin öll ásamt mennskum konum og körlum úr öllum stéttum, og rekur fyrir þeim söguna, minnir þau á uppruna sinn og það hvernig Óðinn hefur veðsett annað auga sitt fyrir völd og sér því ekki nema hálfan sannleikann. Hún minnir hann á hvernig hann tók þátt í að skapa stríð í veröldinni og valdatogstreitu. Hún spáir framtíð þar sem bræður berjast á banaspjótum og þar sem jörðin sjálf spúir eldi og reyk og sekkur á endanum í sæ. Og hún spyr bæði Óðin og áheyrendur alla ítrekað: Vitið þér enn - eða hvað? En völvan sér lengra, hún sér rísa nýja iðjagræna jörð sem gefur goðum og mönnum nýja möguleika, þar sem þau munu finna hinar gullnu töflur í grasinu, viskuna fornu sem vísar leið til framtíðar.
Þórunn hyrna - landnámskona í Eyjafirði
Hver var hún? Hvaðan kom hún? Á hvað trúði hún? Hver voru áhrif hennar á okkur?
Þórunn hyrna var formóðir Eyfirðinga. Eftir henni er ein lengsta gata Akureyrar nefnd Þórunnarstræti og við norðurendann rísa klappir með styttu af Þórunni og eiginmanni hennar Helga magra. Þórunn var móðir hinna ýmsu kvenna og karla sem við vitum meira um en um hana. Hún var líka systir frægustu landnámskonunnar, Auðar djúpúðgu, en þær systur voru af einni mestu landnámsætt Íslands. Í gegnum þessi tengsl getum við fengið óljósa mynd af Þórunni og í sögustundinni mun reynt að kalla fram mynd af henni og þeim tíðaranda sem ríkti í hennar tíð, með því að hún segi sögu sína og þeirra kvenna og karla sem henni tengjast. Jafnframt munum við velta fyrir okkur þeim áhrifum sem Þórunn og samtíð hennar hefur haft á íslenskan nútíma.


