Draumar - auður svefnsins - hádegisfyrirlestur hjá VR
Fimmtudaginn 6.maí kl.12 mun ég fjalla um drauma í hádegisfyrirlestraröð VR í Reykjavík.
Sjá nánar á http://www.vr.is/index.aspx?GroupID=476451&eventId=499&EventModuleId=499
Draumar eru elsta listgrein mannkyns - Jorge Lois Borges
Okkur dreymir öll, í hvert sinn sem við sofum. Draumar hafa verið hvatning til sköpunar, grunnur að hugmyndum og trú, og leiðbeinandi í samskiptum og stjórnskipan frá örófi alda. Á Íslandi hugum við enn að draumum, meira en margar vestrænar þjóðir, en í hröðum og firrtum nútíma eigum við þó á hættu að gleyma þessum auði svefnsins sem við öll höfum aðgang að.
Í erindinu fjalla ég um hlutverk og eðli drauma og hvernig má nýta þá til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Ég rýni í táknmál draumanna og hugmyndir um drauma allt frá formæðrum okkar og -feðrum til arftaka Jung.


