Draumar - auður svefnsins
Nú hefst "draumavertíð" haustins, nætur orðnað dimmar og lífið að komast í fastar skorður. Þá er mikilvægt að huga að draumunum.
Vanadís býður upp á stutt námskeið um drauma (4 klst): Þriðjudaginn 21.september kl.18 - 22 og svo lengra námskeið (12 klst) þar sem við lærum að vinna með og skilja drauma, 13., 14., 27.október og 3.nóvember kl.18 - 21
Styttra námskeiðið er kynning á hlutverki og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Kynntar eru einfaldar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og vinna með drauma.Á lengra námskeiðinu er fjallað dýpra um hlutverk og eðli drauma, unnið er í hópum og pörum og þátttakendur tileinka sér ýmsar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og vinna með drauma í einkalífi og starfi. Rýnt er í táknmál draumanna og hugmyndir og kenningar um drauma allt frá formæðrum okkar og -feðrum og frumbyggjum jarðar, til arftaka þeirra Freud og Jung.
Verð kr. 6.000 (4 klst) og 18.000 (12 klst)
Nánari upplýsingar undir Námskeið > Draumanámskeið hér til vinstri. Skráning í tölvupósti á netfangið vanadis@vanadis.is og í síma 895 3319


