Fréttir

Draumar - auður svefnsins

Steve Cieslawski
Steve Cieslawski

Stutt námskeið eða kynning (4 klst) verður 10.október kl.15 -19 en lengra námskeiðið (12 klst) verður á þriðjudögum í nóvember og hefst 3.nóvember kl. 18 - 21. Athugið breytta dagsetningu!

Námskeiðið fjallar um hlutverk og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Okkur dreymir öll, í hvert sinn sem við sofum, en munum það hins vegar ekki alltaf.

Styttra námskeiðið veitir örlitla innsýn í heim draumanna og þátttakendur læra einfaldar aðferðir til að vinna með drauma. Á lengra námskeiðinu verður unnið í hópum og pörum, og þátttakendur tileinka sér ýmsar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og skoða drauma. Rýnt verður í táknmál draumanna og kenningar um drauma allt frá formæðrum okkar og -feðrum, til frumbyggja Ástralíu og arftaka Jung. Þátttakendur verða virkir í að þróa námskeiðið og velja úr ýmsum þeim aðferðum sem þekktar eru til að kanna þetta ótakmarkaða og ævintýralega land svefnsins.

Skráning og upplýsingar á vanadis@vanadis.is og í síma 895 3319

Verð: styttra kr.5000 og lengra kr. 15.000



Deildarval

Framsetning efnis

Innskráning