Dömulegir dekurdagar Vanadísar
Vanadís tekur þátt í Dömulegum dekurdögum í ár, eins og í fyrra.
Nú verður annars vegar boðið upp á örnámskeiðið Helgióður, um ástarljóð súmersku gyðjunnar Inönnu á föstudag og hins vegar draumaspeglanir og draumanámskeið á laugardag.
Helgióður - örnámskeið um ástarljóð Inönnu
Föstudaginn 9. október kl. 17 - 19 Verð kr.2000
Súmerska gyðjan Inanna var í árþúsundir ástsælasta gyðjan í Miðausturlöndum, þeim samfélögum sem kölluð hafa verið vagga menningar okkar. Um hana voru ort og skráð ótal ljóð og kvæðabálkar sem varðveist hafa. Inanna var það sem kallað er Mikla Gyðja, hún var gyðja himins og jarðar, gyðja lífs og dauða, stríðs og friðar og síðast en ekki síst gyðja frjósemi og ásta. Ástarljóðin sem mörg eru ort í orðastað Inönnu eru erótísk og mögnuð. Á þessu námskeiði munum við rýna í nokkur ástarljóðanna og ræða um menninguna og lífssýnina sem þau spretta úr.
Draumaspeglun – einkatímar
Laugardaginn 10. október 10 – 14 Verð: 30 mínútna draumaspeglun kr.1000
Komið með draumana ykkar og fáið leiðbeiningar um það hvernig þið getið nýtt þá til sjálfsskoðunar og sjálfsstyrkingar.
Draumar – auður svefnsins
Laugardagur 10. október kl.15 - 19 Verð kr. 5.000
Stutt kynning á hlutverki og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Okkur dreymir öll, í hvert sinn sem við sofum, en munum það hins vegar ekki alltaf. Kynntar verða einfaldar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og vinna með drauma.
Skráning á námskeiðin á vanadis@vanadis.is


