Ástarljóð Inönnu - Gyðjusögur 14.febrúar
Almennt - þriðjudagur 14.feb.12 00:00 - Lestrar 62

Ástarljóð Inönnu eru óður gyðjunnar til guðsins. Seiðandi ákall drottningar himins og jarðar til ástmanns síns konungsins.
Inanna elskaði Dumuzi, en hún var brúður sérhvers konungs. Í ljóðunum lýsir hún ást sinni og þrá og hinu helga brúðkaupi. "það þarf að losa um akrana mína, þetta er mitt helga orð, geislandi höll án sólar sinnar, ég þrái þig Dumuzi, trjágrein þín lyftir sér að píkunni minni".
Staður: Sóltún 6, Reykjavík
Verð kr.5000.-
Skráning hér á síðunni eða vanadis@vanadis.is


