Aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum
Almennt - miðvikudagur 9.jún.10 12:08 - Lestrar 469
Akureyrarbær er fyrsta sveitarfélag á Íslandi sem samþykkir sérstaka aðgerðaáætlun gegn kynbundu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum. Bæjarstjórn samþykkti áætlunina samhljóða með öllum greiddum atkvæðum 27.apríl s.l. Ég (VHB) og SÚN-hópurinn (óformlegur hópur fagfólks á Akureyri sem vinnur að samhæfingu aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi) höfum árum saman barist fyrir því að slík áætlun yrði gerð hér og ég var í hópi þeirra sem komu að vinnu við áætlunin. Það er því ástæða til að fagna. Sjá nánar á heimasíðu Jafnréttisstofu http://www.jafnretti.is/jafnretti/?D10cID=ReadNews&ID=680


